Það er eins gott fyrir ykkur að hafa saknað mín!! Ég verð bara eiginlega að ég hafði hálfpartinn gleymt þessari síðu. Allavena svona síðustu dagana. Enda hefur tölvunotkun mín minnkað verulega. Ég var reyndar búin að skrifa ansi langt blogg fyrir rúmlega viku en náði aldrei að klára það. Þannig að þið verðið bara að afskaka þessa löngu fjarveru afþví að núna er fyrsta blogg október mánuðar loksins komin og Árni Bergur verður ekki það fyrsta sem þið sjáið þegar þið kíkjið á síðuna(sem betur fer:P) En já, um hvað á maður að blogga? Ég er eiginlega komin úr þjálfun...En ætli ég segi ekki bara aðeins frá helginni....Á föstudaginn fór ég skólann og það var bara óskup venjulegt. Eftir skólann fór ég svo heim með Árna og við fórum og hittum Magga og fórum svo á Mýrina sem er bara hin fínasta mynd. Eftir það fórum við aftur heim til hans og ég fór ekki heim fyrr en um 1 ehemm.....Og svo á laugardaginn vaknaði ég rétt fyrir 9 og dreif mig á fætur og fór í stræðfræðikeppni niðrí MR þar sem mitt lið, Stærðfræðiblætingarnir, vann. Eftir keppnina var ég búin með nördaskammt dagsisns og fór heim til Árna og við fórum með mömmu hans á Listasafn Reykjavíkur á þessa líka ágætu sýningu. Mér fannst allavena gaman(hverjar eru líkurnar á því?). En svo fórum við aftur heim til hans og vorum eitthvað að passa og leigðum svo einhverja mynd sem ég man ekki hvað heitir....eða jú, Running Scared held ég. Hún var alveg fín, allavena skemmtilegri en SP;) Á sunnudaginn fór ég svo í Kringluna með Ástu þar sem við rápuðum búð úr búð og enduðum á að kaupa okkur brjóstahöld og ég keypti mér líka svartar gallaðarbuxur(kúrekabuxur á dönsku). Þegar við vorum búnar að versla héldum við heim á leið eftir árangursríka verslunarferð. Þegar ég kom heim ætlaði ég að taka til og læra en já, ég held að við getum öll getið okkur til um hvernig það fór...En svo í morgun vaknaði ég(ótrúlegt en satt) og fór í skólann og var bara í einhverri afslöppun að skoða þessa líka skemmtilegu mynd af mér og Sólrúnu á gamlárskvöld '92 eða '93. Og svo eftir skóla kíkti ég heim til Árna(hvernig vissiru?) og hjálpaði honum að passa og ég verð bara að segja að systkini hans eru algjör krútt, að berjast um hvort þeirra fær að vera hjá mér....:P En svo kom ég bara snemma heim og ákvað að blogga og það er það sem ég er búin að vera að gera síðasta 1 og hálfa tíman en ég eldaði og borðaði í milli tíðinni(þið eruð ekki það merkileg). En ég er að hugsa um að enda þetta núna. Takk fyrir og gleðileg jól
Þennan dag fyrir 16 árum fæddist drengur að nafninu Árni Bergur Zoëga. Líf hans átti síðar meir eftir að einkennast af mikilli snilligáfu þegar kemur að því að spila á lágfiðlur enda gerði hann mikið af því. Hann gekk í skóla í Svíþjóð og síðar í Laugardalnum. Það var hinsvegar ekki fyrr en á busaballi MR sem ég hitti hann og hef ég því bara þekkt hann 0,4% af ævi hans. En já, þetta voru bara svona aukaupplýsingar, ég ætlaði bara að óska honum til hamingju með daginn þannig að....Til hamingju með afmælið Árni Bergur. Hér koma svo nokkrar myndir af folanum:
Þessu síða hefur legið niðri núna í nokkurn tíma hvað varðar blogg en ég ætla nú ekkert að biðjast afsökunar á því, því ekki vil ég íþyngja ykkur með afspyrnu leiðinlegum bloggum. Ég meina, hvern vill heyra um þreytu mína aftur og aftur. Ég veit að það er áhugavert umræðu efni en það má ofgera öllu.
En ég hef nú samt góðar fréttir líka. Hann Hjalti reið á vaðið og hér með fyrstur til að koma með uppástungu að bloggi sem ég ætla samt að leyfa öllum félagsskítunum að lesa. En bara ef þið komið með hugmynd næst....Orðið sem Hjalti lét mig fá er dyrabjöllur.
Dyrabjöllur eru mjög áhugaverður hlutur. Þær eru orðnar sjálfgefinn hlutur á hverju heimili og þykir illt í efni þegar slíkar bila. Í húsinu mínu er dyrabjallan til dæmis biluð en við erum svo heppin að við erum útbúin dyrahamri sem fólk ber ótt og títt. Samt væri vetra ef að bjallan virkaði því að það kemur reglulega fyrir að ég er læst úti þegar öll fjölskyldan er inni að horfa á sjónvarpið og heyrir ekki mér. Og það er sko alls ekki gaman skal ég segja ykkur. Hvernig ætli þetta hafi verið áður en þeir fundu upp dyrabjölluna og dyra hamarinn? Bankaði fólk bara á fullu þangað til einhver kom til dyra? Það getur ekki hafa verið heilsusamlegt að vera alltaf að berja hnúunum í harðar hurðir og hlítur að hafa valdið liðagigt eða að minnsta kosti siggi á hnúunum og hver vill vera með sigg? Ætli það hafi ekki bara verið félag tétneskra gigtarsjúklinga og samtök namimbískra handafyrirsæta sem stuðluðu að uppfinningu dyrabjöllunnar? Það held ég nú....
Já, skólinn hefur verið ansi krefjandi en að ósk hins eina dygga aðdáanda hef ég ákveðið að finna nokkrar mínútur sem ekki var vitað að væru í sólarhringnum og eyða þeim til bloggskrifta. Eins og ég sagði hef ég verið mjög upptekin við námið og annað sem tengist menntaskólanum. Nú nálgast víst svokallað álagstímabil sem kennararnir virðast ekki fá nóg af að tala um. Svo nálgást árshátíð Skólafélagssins en hún verður í byrjun október og skráði ég mig í skreytinganefnd(sem er víst ekki mjög gáfulegt ef manni finnst nú þegar mikið að gera) þannig að það lítur út fyrir að ég þurfi görsamlega að fara í einangrun utan skólatíma bara til að falla ekki svo að ekki láta ykkur bregða ef ég hverf skyndilega af yfirborði jarðar í nokkrar vikur. Ekki það að ég sé dugleg að stunda bóklega námið.... En ég hef því miður ekki meiri tíma fyrir ykkur, spænskan kallar!
Einu sinni var stelpa að nafninu Ylfa að kaupa sér nýjan síma og flýtti sér að setja hann í hleðslu þegar hún kom heim og svo eftir klukkutíma þegar hún kom aftur fattaði hún að hún hafði gleymt að setja batteríið í.
Já, þið heyrðuð rétt! Ég lét verða af því og fékk mér nýjan síma(loksins hugsa eflaust margir). Sá heppni kallast Nokia 6111 en ég á eftir að finna annað og meira viðeigandi nafn á hann. Hér er svo mynd af folanum:
Nú er bara að hefja veðmálið um hversu lengi hann endist....(þið vitiið hvað ég er að tala um)...
Þá er það komið á hreint...ég er jafnmikið maðurinn og Robbie Williams og Chris Martin en þó ekki jafn svöl og Marty Casey...Til að særa ekki Justin Timberlake ætla ég ekkert að minnast á frammistöðu hans. Og í tilefni sigurs Martys er titillinn heiðraður honum.
Ég hef eitt orð til að lýsa busadeginum: GEÐVEIKI! Dagurinn byrjaði með því að allir busarnir mættu í skólann í hvítum bolum og bláum gallabuxum og sungu gádan ótt og títt í tímum til að reyna að læra hann á síðustu stundu því jú, enginn vildi fara á ofurbusalistann fyrir að kunna hann ekki. Eftir að flestir höfðu lært hann og kennararnir ákváðu að nóg væri komið kennslu hófst busunin. Okkur var holað niður í einhverja stofu í gamla skóla þar sem við höfðum gott útsýni yfir það sem var að gerast úti en svo komu einhverjar tóga klæddar stelpur og náðu í okkur og fór með okkur út auk þess sem þær busuðu okkur eitthvað. Þegar út var komið vorum við öll tolleruð og síðan boðin velkomin af inspevtor scholae og svo fengu allir súkkulaðiköku. Um kvöldið var svo busaballið og fyrirpartíið þar sem fólk var í misgóðu ástandi en ég skemmti mér alveg konunglega. Gærdagurinn var líka mjög áhugaverður en kannski ekki alveg á jafngóðan hátt. Í gær þurftu nefnilega allir að mæta í skólann klukkan 8, óháð því hvenær þeir höfðu farið að sofa og hversu þunnir þeir voru. En það var bara ágætt, örugglega miklu betra en hanga heima að vorkenna sér. Eftir skólann fór ég eitthvað að útrétta og fór til dæmis loksins með mp3 spilarann minn í viðgerð en eftir það fór ég heim að hvíla mig og fór svo í bíó í gærkvöldi á United 93...vá hvað maður hafði aldrei hugsað svona mikið um þetta....En í dag er ég að hugsa um að taka kannski soldið til...
Ég hef verið algjörlega ófær í að mynda rétt uppbyggða og skiljanlega setningu í dag. Ég held að það sé kvefinu að kenna, heilinn er að drukkna úr hori og getur því ekki starfað eðlilega sem veldur því svo að maður fær hausverk og hita í kaupbæti. En það er bara betra. Fyrsta TeBó-ið var á laugardaginn og skemmtu sér allir þar, sumir meira en aðrir og endaði þetta allt niðrí skeifu. Og svo í gær var það berjanór og í dag skóli og danskennsla nú í kvöld þar sem við lærðum tja tja tja, rúmbu og djæf. Á morgun er það síðan skóli og svo Bloodhound gang tónleikarnir. Á miðvikudaginn verður það svo bara skóli og almenn afslöppun og á fimmtudaginn verð ég svo tekin í hóp virtra mr-inga með busun og síðar busaballi og þar verður aldeilis fjör. Djamm og djús fram á rauða nótt. Eða svona. Og ég var að pæla um helgina að slappa af kannski fara eitthvað að versla. Er einhver til í að vera sérlegur ráðgjafi í þeim leiðangri?
Ylfa segir bless bless (p.s.hver fattaði kveðjuna?)